top of page

lau., 30. apr.

|

Ómur Yoga & Gongsetur

Kennaranám HAF Yoga

HAF Yoga (áður Jóga í vatni) hefur verið kennt undanfarin 10 ár á Íslandi við vaxandi vinsældir. Vegna áhuga sem hefur skapast verður haldið sjötta jógakennaranámið í vatni árið 2022/23 þegar aðstæður leyfa. Þetta er 200 klst alþjóðlega viðurkennt nám af Yoga Alliance.

Registration is Closed
See other events
Kennaranám HAF Yoga
Kennaranám HAF Yoga

Time & Location

30. apr. 2022, 08:00

Ómur Yoga & Gongsetur, Lyngholt 20, 603 Akureyri

About the event

HAF  Yoga (áður Jóga í vatni) hefur verið kennt undanfarin 10 ár á Íslandi  við vaxandi vinsældir. Vegna áhuga sem hefur skapast verður haldið  fimmta jógakennaranámið í vatni árið 2021. Þetta er 200 klst alþjóðlega viðurkennt nám af Yoga Alliance.

Arnbjörg  Kristín Konráðsdóttir er viðurkenndur RYS200 jógakennari frá Yoga  Alliance (með yfir 700 klst af fjölbreyttu jóganámi að baki frá  alþjóðlega viðurkenndum kennurum og hlakkar til að vera nemandi áfram  ásamt því að kenna), jógakennari og jógískur ráðgjafi og mun leiða námið  auk annarra fagaðila:

Valdís Arnardóttir raddþjálfari. Ólafi Ingi Grettisson sjúkraflutningsmaður og skyndihjálparkennari. Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir, viðurkenndur sjúkraþjálfari.

Arnbjörg hefur þróað og haldið fjölda námskeiða í jóga í vatni bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri sl. 9 ár sem og sótt framhaldsnám í vatnsþjálfun hjá AEA í Bandaríkjunum.

Fjöldatakmörkun  er í námið og ekki teknir fleiri inn en 11 manns í einu. Fyrirhugað er  að kenna á Heilsustofnun NLFI í Hveragerði í 7 lotum. Hver lota varir í 3 daga (föstudaga,  laugardaga og sunnudaga í alls 30 klst) og verður farið í nauðsynlega  verklega og fræðilega grunnþætti sem lúta að jóga, hugleiðslu, slökun,  sjálfskærleika, mannslíkamann og vatnsþjálfun. Verð 310.000,-kr og er  morgunverður, hádegisverður og síðdegishressing innifalinn alla dagana.  (hægt að skipta greiðslum). 

Þetta eru 7 helgar alls og stefnum við að því að hefja kennslu í september 2022. 

Hér  er á ferðinni einstakt og hagnýtt nám fyrir alla sem vilja ná betri á  jógaiðkun og kennslu sem og yfirfærslu jógaæfinga í vatni. Farið verður í  jógíska heimspeki, fróðleik um hugleiðslu, öndun, jóga og slökun auk  þess sem þátttakendur fá grunn í raddþjálfun og námskeið í björgun í  vatni sem er lögbundið skilyrði áður en viðkomandi fer að starfa við  jógakennslu í vatni (endurmenntun á 2 ára fresti að lágmarki).

Sendu póst á hafyoga@gmail.com til að sækja um og þú færð umsóknina senda til baka! Seinasti dagur til að sækja um er 10. ágúst 2022.

Verið innilega velkomin Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir www.hafyoga.is

Share this event

bottom of page