top of page

fös., 10. jan.

|

Heilsustofnun í Hveragerði

Kennaranám í HAF Yoga 2021

Vertu velkomin í 200 klst kennaranám sem haldið er á Heilsustofnun í Hveragerði. Við byrjum í janúar 2021. Kennt er í 7 lotum (3 dagar í senn, fös, lau og sun). Arnbjörg Kristín kennir ásamt 3 öðrum faglærðum kennurum.

Registration is Closed
See other events
Kennaranám í HAF Yoga 2021
Kennaranám í HAF Yoga 2021

Time & Location

10. jan. 2020, 08:00

Heilsustofnun í Hveragerði, Grænumörk 10, Hveragerði, Iceland

About the event

HAF Yoga (áður Jóga í vatni) hefur verið kennt undanfarin 9 ár á Íslandi við vaxandi vinsældir. Vegna áhuga sem hefur skapast verður haldið fimmta jógakennaranámið í vatni sem mun hefjast í janúar 2021. Þetta er 200 klst alþjóðlega viðurkennt nám af Yoga Alliance.

 

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir er viðurkenndur RYS200 jógakennari frá Yoga Alliance (með yfir 700 klst af fjölbreyttu jóganámi að baki frá alþjóðlega viðurkenndum kennurum), kundalini jógakennari og jógískur ráðgjafi og mun leiða námið auk annarra fagaðila:

 

Valdís Arnardóttir raddþjálfari.

Ólafi Ingi Grettisson sjúkraflutningsmaður og skyndihjálparkennari.

Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir, viðurkenndur sjúkraþjálfari. 

 

Arnbjörg hefur þróað og haldið fjölda námskeiða í jóga í vatni bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri sl. 9 ár sem og

sótt framhaldsnám í vatnsþjálfun hjá AEA í Bandaríkjunum.

 

Fjöldatakmörkun er í námið og ekki teknir fleiri inn en 11 manns í einu. Fyrirhugað er að kenna á Heilsustofnun NLFI í Hveragerði í 7 lotum auk þess sem við höfum eina lotu nær náttúrulaug. Hver lota varir í 3 daga (föstudaga, laugardaga og sunnudaga í alls 30 klst) og verður farið í nauðsynlega verklega og fræðilega grunnþætti sem lúta að jóga, hugleiðslu, slökun, sjálfskærleika, mannslíkamann og vatnsþjálfun. Verð 310.000,-kr og er morgunverður, hádegisverður og síðdegishressing innifalinn alla dagana. (hægt að skipta greiðslum). Einnig er hið víðfræga útskriftarleirbað. :)

 

Helgarnar:

11.-13. september

16.-18. október

13.-15. nóvember

8.-10. janúar

19.-21. febrúar

12.-14.mars

16.-18. apríl

 

Hér er á ferðinni einstakt og hagnýtt nám fyrir alla sem vilja ná betri á jógaiðkun og kennslu sem og yfirfærslu jógaæfinga í vatni. Farið verður í jógíska heimspeki, fróðleik um hugleiðslu, öndun, jóga og slökun auk þess sem þátttakendur fá grunn í raddþjálfun og námskeið í björgun í vatni sem er lögbundið skilyrði áður en viðkomandi fer að starfa við jógakennslu í vatni (endurmenntun á 2 ára fresti að lágmarki).

 

Hver nemandi vinnur að auki einn á einn með Arnbjörgu að dýpkun eigin hugleiðslu og jógaiðkunar meðan á námi stendur til að öðlast betri skilning á áhrifum á líf og líðan.

 

Sendu póst á hafyoga@gmail.com til að sækja um og þú færð umsóknina senda til baka!

Seinast dagur til að sækja um er 1. nóvember 2020!

 

Verið innilega velkomin

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

www.hafyoga.is

Share this event

bottom of page